Skip to product information
1 of 1

Dr Kent CBD og glúkósamín verkjakrem

Dr Kent CBD og glúkósamín verkjakrem

Verð 7.990 ISK
Verð 0 ISK Útsöluverð 7.990 ISK
Afsláttur Uppselt
m/vsk

Stærð : 100ml
Magn CBD : 1100 mg
Ráðlögð notkun : Þunnt lag 1-2svar á dag á valin svæði, nuddist vel inn í húðina.

Heilvirkt CBD (full spectrum)
 

Öflugt verkjakrem sem dregur úr bólgum í liðum. 

Dr. Kent CBD glúkósamínkremið býr yfir fjölbreyttri samsetningu ólíkra innihaldsefna. Í glúkósamínkreminu er mikið magn af lífrænt ræktuðu CBD og meðal annars glúkósamín súlfat, sem hægir á brjóskeyðingu og örvar brjóskmyndun. Glúkósamín gagnast því t.d. vel við slitgigt. Glúkósamínkreminu er einkum ætlað að milda verki í baki, herðum og hálsi, handleggjum og fótum. Margir upplifa skjóta virkni fyrst sem snögga kælingu í húðinni en síðan strax í kjölfarið hitatilfinningu og verkjastillingu
 

Á meðal annarra virkra efna í Dr. Kent kreminu eru m.a. mentól, kamfóra, metýl salicisýlat, negulnaglailmkjarnaolía, útdráttur úr sterkum pipar, natríum kondróatín súlfat, MSM (lífrænn brennisteinn), sterínsýra o.fl. Allt eru þetta náttúruleg efni.


Ábending : 

Þeim sem taka blóðþynningarlyf er ráðlagt frá því að nota Dr. Kent kremið og ágæt varúðarregla er að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk ef reglubundin notkun þess til langs tíma er fyrirhuguð. Forðist að kremið komist í snertingu við slímhúð, augu, viðkvæm svæði eða skemmda húð. Gott er að þvo sér vel um hendur eftir að kremið er borið á. Ekki er ráðlegt að nota kremið á börn undir tólf ára aldri. 


Verkferlar og geymsla. 

CBD innihaldsefnið í Dr. Kent kreminu er unnið úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis Sativa L). Kappkostað er að önnur innihaldsefni séu séu unnin með vönduðum og vottuðum hætti. Framleiðandinn skartar m.a. GMP vottun (Good Manufacturing Practise). Ræktun iðnaðarhampsins er GACP (Good Agricultural and Collection Practices) vottuð og útdráttur CBD kannabínóðanna er gerður með súrefnispressun eingöngu án nokkurra aukefna. Framleiðslan er unnin undir stöðugu gæðaeftirliti ISO/IEC 17025 staðals. Kremið er fáanlegt í 100 ml. áltúpum og best er að geyma það utan mikillar birtu og hita.

Geymist þar sem börn ná ekki til. 

Ingredients

How to use

Shipping

Skoða allar upplýsingar